Tengja OneDrive við Vergo
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Búa til SharePoint síðu
Áður en þú getur tengst OneDrive þarft þú að búa til SharePoint síðu. Sjá leiðbeiningar hér hvernig maður býr til SharePoint síðu.
Tengja OneDrive
Til að koma á tengingu þarftu að fara undir Stillingar og þar undir Tengingar. Þar getur þú valið fyrirtækjatenginguna OneDrive (SharePoint):

Þá færð þú upp þessa skjámynd:

Þú þarft að velja annaðhvort leið 1 eða 2. Ef þú ert óviss hvora leiðina þú villt fara þá væri ekki vitlaust að prófa leið 1. Ef þú ert ekki með admin réttindi(líklegt) á þínum Microsoft aðgangi þá lendirðu fljótt á vegg. Þá þarftu að fara til baka og velja leið 2.
Leið 1

Á skjámyndinni fyrir ofan þarft þú að velja SharePoint síðuna sem þú bjóst til. Taktu eftir að á þessari skjámynd sérðu bara þær SharePoint síður sem eru merkar "Followed". En síður sem þú býrð til ættu sjálfkrafa að vera merktar "Followed".
Leið 2

Á skjámyndinni fyrir ofan þarftu að stimpla inn nafnið á SharePoint síðunni sem þú villt tengjast. Mikilvægt er að nafnið sé 100% rétt. Ýttu síðan á Afrita leiðbeiningar fyrir kerfisstjóra og sendu þær á kerfisstjórann þinn.
Ef það gekk upp að tengja ættir þú að sjá OneDrive valmöguleika undir Öll skjöl og einnig undir hverju máli fyrir sig undir flipanum Skjöl.
Ef þú hefur spurningar eða lendir í vandræðum heyrðu þá í notendaþjónustu Vergo eða sendu tölvupóst á vergo@vergo.is