Færibreytur í athugasemd reikninga
Láttu upplýsingar um mál, greiðanda og reikning fyllast sjálfkrafa í athugasemd reikningagerðar
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 24 days ago
Athugasemdin sem fylgir reikningi, hvort sem hún er skrifuð í reikningagerðarglugganum eða vistuð sem sjálfgefin athugasemd í stillingum bókhaldstengingar, getur innihaldið færibreytur. Þær eru skrifaðar innan slaufusviga, t.d. {CustomerName}, og fyllast út sjálfkrafa fyrir hvern reikning þegar hann er stofnaður. Sama athugasemd getur því orðið mismunandi á hverjum reikningi reikningagerðarinnar.
Notaðar eru sömu færibreytur og í sniðmátum skjala, auk þeirra sem reikningurinn sjálfur á: greiðandi, númer, dagsetningar og tímabil vinnunnar.
Dæmi
Sjálfgefin athugasemd tengingar:
Vinna fyrir {CustomerName} í máli {ProjectNumber} frá {PeriodFrom} til {PeriodTo}. Ábm. {ProjectEmployeeName|initials}.
verður á reikningnum:
Vinna fyrir Acme ehf. í máli 2026-14 frá 01.08.2026 til 31.08.2026. Ábm. JJ.
Óþekkt færibreyta er látin standa óbreytt í textanum. Sé t.d. {CustomerNmae} skrifað sést villan á reikningnum í stað þess að hverfa þegjandi.
Færibreytur reikningsins
Greiðandi:
{PayorName},{PayorSSN},{PayorAddress},{PayorPostalCode},{PayorCity},{PayorEmail},{PayorPhone}Mál:
{ProjectNumber}(málsnúmer, t.d. 2026-14),{ProjectName}Reikningur:
{InvoiceNumber}(Vergo-númer, t.d. R-1000),{InvoiceDate}(bókunardagur),{DueDate}(gjalddagi),{FinalDueDate}(eindagi)Tímabil vinnunnar:
{PeriodFrom}og{PeriodTo}, fyrsta og síðasta dagsetning færslnanna sem reikningurinn nær yfir
Færibreytur úr málinu
Umbjóðandi:
{CustomerName},{CustomerSSN},{CustomerAddress},{CustomerPostalCode},{CustomerCity},{CustomerEmail},{CustomerPhone}Gagnaðili (VergoLaw):
{CounterPartyName},{CounterPartySSN},{CounterPartyAddress},{CounterPartyPostalCode},{CounterPartyCity},{CounterPartyEmail},{CounterPartyPhone}Ábyrgðarmaður máls:
{ProjectEmployeeName},{ProjectEmployeeEmail}Starfsmaður sem reikningsfærir:
{EmployeeName},{EmployeeEmail}Fyrirtækið:
{CompanyName},{CompanySSN},{CompanyAddress},{CompanyPostalCode},{CompanyCity},{CompanyEmail},{CompanyPhone},{CompanyVatNumber}Viðbætur málsins: hver viðbót eftir heiti sínu, t.d.
{Slysdagur}eða{Slysdagur|d. MMMM yyyy}Dagurinn í dag:
{CurrentDate},{CurrentDateTime}
Snið
Snið er sett á eftir striki (eða tvípunkti) innan sviganna: {Færibreyta|snið}.
Dagsetningar: sjálfgefið
dd.MM.yyyy. Dæmi:{InvoiceDate|MMMM yyyy}→ „ágúst 2026“,{PeriodFrom|d. MMM}→ „1. ágú.“,{CurrentDate|d. MMMM yyyy}→ „11. september 2026“.Texti:
upper(hástafir),lower(lágstafir),first(fyrsta orð / fornafn),last(síðasta orð / eftirnafn),initials(upphafsstafir). Dæmi:{CustomerName|upper},{ProjectEmployeeName|initials}.Upphæðir (viðbætur af gerðinni upphæð): þúsundapunktar sjálfgefið, eða .NET-snið eins og
{Trygging|N2}.
Sjálfgefin athugasemd er stillt undir Stillingar → Tengingar → Bókhaldstenging → tengingin → Sjálfgefnar stillingar. Hún forfyllist í reikningagerðargluggann og má breyta henni þar fyrir hverja reikningagerð.
More in Bókhaldskerfi
Að tengja bókhaldskerfi við VergoPaydayDK+ReglaStill need help? Ask the team