Hvernig virka sniðmát?

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated 1 day ago

Sniðmát auðvelda þér að endurnýta sömu skjölin fyrir mismunandi mál eða verkefni. Einnig gera þau þér kleift að skjóta inn í skjölin málsupplýsingum með notkun svokallaðra færibreyta. Eftir að hafa vistað skjal sem sniðmát þá getur þú með auðveldum hætti afritað það niður á mál eða verkefni:

Sniðmát og færibreytur

Þegar þú stofnar sniðmát fyrir .docx skjöl þá getur þú nýtt þér færibreytur. Þær geta t.d. nýst þegar þú ert með samning sem þú villt nota fyrir mörg mismunandi mál en þú villt að ákveðnar upplýsingar, eins og t.d. nöfn samningsaðila, séu mismunandi eftir máli og taki mið af þeim upplýsingum sem hafa verið skráðar á mál. Sjá nánar hvernig hægt er að nota færibreytur hér.