Skip to main content

Backlog

1

Under consideration

Next up

4

Committed and queued

In Progress

1

Actively being built

Done

9

Recently shipped

Feature Request

Lagatilvísanir í lagasafni

Þegar lög vísa í aðra lagagrein birtist það í tilvísunum hennar, eins og dómar og úrskurðir gera nú. Þannig sést til dæmis hvaða lög vísa í 26. gr. skaðabótalaga. Þetta á líka við um samþykkt lög frá Alþingi, og tilvísanirnar eru uppfærðar þegar ný útgáfa lagasafnsins kemur út.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

Ákvarðanir Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)

Ákvarðanir ESA um ríkisaðstoð, samkeppni og samningsbrotamál.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

Dómar EFTA-dómstólsins

Dómar og ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins, þar á meðal í málum frá íslenskum dómstólum.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

Dómar Evrópudómstólsins (CJEU)

Dómar, úrskurðir og álit aðallögsögumanna Evrópudómstólsins og Almenna dómstólsins aðgengileg í heimildaleit og hjá Lögfinni.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

ESB-gerðir á ensku

Reglugerðir, tilskipanir og ákvarðanir Evrópusambandsins, auk sáttmálanna og EES-samningsins, aðgengileg í heimildaleit og hjá Lögfinni.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

Ferill þingmála

Yfirlit yfir hvert þingmál: öll þingskjöl í tímaröð, erindi sem bárust nefnd, lokaatkvæðagreiðsla, fyrri útgáfur málsins á eldri þingum og lögin sem málið setti eða breytti.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

Lögskýringargögn á lagasíðum

Á hverri lagasíðu birtast frumvarp, greinargerð, nefndarálit og breytingartillögur bæði upphaflegu laganna og allra breytingalaga. Hægt er að afmarka lögskýringargögnin við einstaka lagagrein og sjá þau þingmál sem breyttu henni.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

Lögskýringargögn frá Alþingi

Frumvörp með greinargerðum, nefndarálit, breytingartillögur, þingsályktanir, skýrslur og minnisblöð til þingnefnda frá Alþingi, aftur til 1907, leitarbær í Vergo og Lögfinni. Í leitarniðurstöðum sést hvort frumvarp var samþykkt og hvaða lög það varð, því frumvarp sem var ekki samþykkt er ekki lög.

Kjartan Valur Þórðarson
Feature Request

Undirritanir

Hæhæ, það væri frábært ef að sá sem að sendir samning til undirritunar fái til kynningu eða tölvupóst um þegar samningurinn hefur verið undirritaður af aðilum.

Þóra Lóa Pálsdóttir