Stofna sniðmát
Sniðmát fyrir öll helstu form sem þú notar
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Opna stillingar:
Farðu í Stillingar og síðan Sniðmát.
Stofna sniðmát:
Smelltu á Stofna hnappinn.
Velja skrá:
Veldu þá skrá sem þú vilt setja inn vista sem sniðmát. Þegar þú hefur valið skránna birtist nafn hennar sjálfkrafa í Heiti reitnum, en þú getur þó breytt því.
Athugaðu að skráarendingar eins og
.docxættu ekki að vera í heitinu.
Kveikja á færibreytum:
Ef skráin þín er
.docxskjal, þá getur þú kveikt á færibreytum.Ef þú þarft hjálp með það, þá er hægt að smella á upplýsingamerkið eða smella hér.
Flokkun:
Ef þú villt þá getur þú valið málaflokk og undirflokk fyrir sniðmátið. Þetta gerir þér kleift að flokka og finna sniðmátin þín með auðveldari hætti síðar.
Lýsing:
Hér getur þú sett inn stuttan texta sem lýsir sniðmátinu þínu, t.d. hvernig það ætti að vera notað eða í hvaða aðstæðum það hentar best.
Núna ættir þú að hafa stofnað sniðmát í Vergo!
