Að fá tillögur að tímaskráningum
Vergo hjálpar þér að finna tíma til að skrá
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Vergo hjálpar þér að finna tíma til að skrá
Vergo gefur tillögur að tímaskráningu út frá notkun. Tillögur Vergo vísa að jafnaði á mikinn fjölda tíma sem annars hefði gleymst að skrá og rukka. Vergo sækir tillögur að tímaskráningum úr fjölmörgum áttum, bæði innan og utan kerfisins.
Hvaðan koma tillögurnar?
Vergo nýtir allar upplýsingar um aðgerðir innan kerfisins, svo sem:
Stofnun máls.
Hafin eða lokin verkefni
Skráðar athugasemdir á mál/verkefni.
Ný skjöl vistuð eða uppfærð á mál/verkefni.
Ef heimildir eru vistaðar á mál.
Þá tengist Vergo við önnur kerfi og sækir tímaskráningar. Má þar nefna:
Office365 (tölvupóstur og/eða dagatal)
Fleiri tengingar væntanlegar
Ef Vergo finnur umbjóðanda í pósti eða viðburði í Outlook setur hann tillöguna á nýjasta mál umbjóðandans. Ef þú vilt tengja við ákveðið mál er hægt að bæta #númeri máls (dæmi #2024-0125) í fyrirsögn(subject) pósts eða viðburðs. # merkið þarf að koma fyrir framan númerið. Fyrirsögnin má samt alveg innihalda meiri texta.
Hvar sjást tillögur að tímaskráningum?
Undir "vinnustundir" viðmótinu til að skrá tíma má sjá fjölda tillögur niður á daga með bláum bakgrunn undir númeri vikudags. Það þýðir að Vergo hefur tillögur að tímaskráningum fyrir þessa daga. Teljarinn telur fjölda tillagna um tímaskráningu sem Vergo leggur til að skrá.
Skref til að nýta tillögur
Smelltu á vikudaginn til að opna viðmót með tillögunum fyrir þann dag.

Sjá má þær tillögur sem Vergo leggur til fyrir þann dag.

Til að nýta tillögu og skrá tíma, smelltu á samþykkja takkann við tillöguna.
Þá kemur upp gluggi til að skrá frekari smáatriði.
Hvenær hverfa tillögurnar?
Um leið og tillaga er nýtt hverfur hún úr listanum.
Tillögur hverfa einnig ef þú smellir á hnappinn "hafna".
Ef þú nýtir ekki tillögurnar verða þær aðgengilegar áfram.
Hvernig skapa tillögurnar mestar tekjur?
Þeir sem skoða tillögur í lok dags fá mestar tekjur út úr tillögunum og ná að skrá allar tekjur sem mögulegt var að skrá. Þetta vinnulag eykur líkurnar á því að engar tekjur fari forgörðum.