Skip to main content
Sniðmát

Færibreytur í sniðmátum

Í Microsoft Word (docx) sniðmátum

Written By Kjartan Valur Þórðarson

Last updated About 9 hours ago

Þegar þú notar docx sniðmát í Vergo er hægt að nota færibreytur til þess að hafa upplýsingar sjálfkrafa með á ákveðnum stöðum í textanum.

Sem dæmi, ef ég hef vistað þetta skjal sem sniðmát:

Og svo vista ég sniðmátið niður á mál, þá ættu málsupplýsingar að koma í staðinn fyrir færibreyturnar:

Hér fyrir neðan eru dæmi um þær færibreytur sem þú getur notað í sniðmátum:

  1. Umbjóðandi:

    • Nafn: {CustomerName}

    • Kennitala: {CustomerSSN}

    • Email: {CustomerEmail}

    • Sími: {CustomerPhone}

    • Heimilsfang: {CustomerAddress}

    • Sveitarfélag: {CustomerCity}

    • Póstnúmer: {CustomerPostalCode}

  2. Gagnaðili (VergoLaw):

    • Nafn: {CounterPartyName}

    • Kennitala: {CounterPartySSN}

    • Email: {CounterPartyEmail}

    • Sími: {CounterPartyPhone}

    • Heimilsfang: {CounterPartyAddress}

    • Sveitarfélag: {CounterPartyCity}

    • Póstnúmer: {CounterPartyPostalCode}

  3. Ábyrgðaraðili Máls:

    • Nafn: {ProjectEmployeeName}

    • Email: {ProjectEmployeeEmail}

  4. Starfsmaður sem stofnar skjalið:

    • Nafn: {EmployeeName}

    • Email: {EmployeeEmail}

  5. Málflokkur og undirflokkur:

    • Málaflokkur: {ProjectType} (Dæmi: Slysamál)

    • Undirflokkur: {ProjectSubType} (Dæmi: Umferðarslys)

  6. Fyrirtækið:

    • Heiti fyrirtækis: {CompanyName}

    • Kennitala: {CompanySSN}

  7. Viðbætur:

    • Viðbætur eru hægt að finna undir valmöguleikanum „Stillingar“ og síðan „Viðbætur“. Þetta er svæði þar sem þú getur bætt við hina ýmsu málaflokka.

    • Dæmi um notkun: {Slysdagur: dd. MMMM yyyy}

  8. Viðhengd skjöl:

    • Hér er hægt að tengja númeraðan lista yfir skjöl sem eru í sömu möppu:{FileReference}

  9. Annað:

    • Færibreytan CurrentTime er notuð til þess að sýna núverandi dagsetningu eða tíma. Hér eru nokkur dæmi um hvernig þú getur notað þessa færibreytu:

      • {CurrentDate: dd.MM.yyyy} skilar t.d. „28.04.2022“

      • {CurrentDate: dd. MMM yyyy} skilar t.d. „28. apr. 2022“

      • {CurrentDate: d. MMMM yyyy} skilar t.d. „28. apríl 2022“

      • {CurrentDate:dd.MM.yyyy HH:mm:ss} skilar t.d. „28.04.2023 14:09:22“

      • {CurrentDate: HH:mm:ss} skilar t.d. „14:09:22“

    • Forma texta

      • First

        • Dæmi

          {ProjectEmployeeName:First} -> Gefur fornafn eða fyrsta orð í setningu.

      • Last

        • Dæmi
          {EmployeeName:Last} -> Gefur eftirnafn eða síðasta orð í setningu.

      • Initials

        • Dæmi
          {ProjectEmployeeName:Initials} -> Upphafstafir strengs.

      • Lower

        • Dæmi
          {ProjectEmployeeEmail:Lower} -> Gefur texta í lágstöfum.

      • Upper

        • Dæmi
          {ProjectEmployeeEmail:Upper} -> Gefur texta í hástöfum.

    • Myndir:

      • Þú getur sett myndir inn í skjal. Myndirnar eru sóttar eftir skráarheiti úr sömu möppu og skjalið er stofnað í.

      • Svona gerirðu:

        1. Settu myndafæribreytu í sniðmátið (sjá leið 1 eða 2 hér að neðan).

        2. Hladdu myndunum upp í möppuna þar sem þú stofnar skjalið og gefðu þeim sama heiti og í sniðmátinu (Breyta heiti), t.d. km.

        3. Stofnaðu skjalið úr sniðmátinu í þeirri möppu.

      • Leið 1: Færibreyta í texta

        • {Image:km} setur inn myndina km.jpg, jafn breiða og síðan (eða reiturinn ef hún er í töflu).

        • {Image:km:8cm} setur myndina inn 8 cm á breidd.

        • {Image:km:16x20cm} lætur myndina passa inn í ramma sem er 16 cm á breidd og 20 cm á hæð.

      • Leið 2: Staðgengilsmynd (best þegar þú vilt ráða stærð og staðsetningu)

        1. Settu hvaða mynd sem er inn í Word, t.d. gráan kassa, og stilltu stærð og staðsetningu eins og myndin á að vera.

        2. Hægrismelltu á myndina, veldu Alt Text (Annar texti) og skrifaðu færibreytuna, t.d. {Image:mynd1}. Ekki haka við „Mark as decorative“.

        3. Þegar skjalið er stofnað kemur rétta myndin í stað staðgengilsmyndarinnar, í sömu stærð og á sama stað.

      • Gott að vita

        • Myndin er aldrei teygð eða skorin. Hún er minnkuð eða stækkuð svo hún passi inn í rammann og heldur hlutföllum sínum.

        • Há- og lágstafir skipta ekki máli og ekki þarf að skrifa endinguna: {Image:km} finnur km.jpg. Ef bæði km.jpg og km.png eru í möppunni þarf að skrifa endinguna, t.d. {Image:km.jpg}.

        • Aðeins er hægt að nota JPG og PNG myndir. Mynd á HEIC sniði (iPhone) þarf að vista sem JPG fyrst.

        • Ef myndin finnst ekki í möppunni stendur færibreytan óbreytt í skjalinu.

        • Myndir úr síma snúa rétt og eru minnkaðar sjálfkrafa, svo skjalið verður ekki of stórt.

        • Hver mynd má vera að hámarki 25 MB og allar myndir í skjali samtals 150 MB.

        • Myndir hlið við hlið: settu þær í töflu án ramma, t.d. 2×2 töflu fyrir fjórar myndir.

        • Mynd sem fyllir heila síðu: stilltu línubil málsgreinarinnar á Single (Einfalt) og bil eftir á 0. Annars getur komið auð síða þegar skjalið er vistað sem PDF.

        • Eins og fyrir aðrar færibreytur þarf að kveikja á „Færibreytur“ í sniðmátinu.

      • Dæmi: Ástandsskýrsla bifreiðar

        • Tafla 2×2 með staðgengilsmyndum {Image:mynd1}, {Image:mynd2}, {Image:mynd3} og {Image:mynd4}.

        • Ný síða með staðgengilsmynd {Image:km}.

        • Í möppu málsins: mynd1.jpg, mynd2.jpg, mynd3.jpg, mynd4.jpg og km.jpg.