Skip to main content

Changelog

Follow new updates and improvements to Vergo.

Evrópurétturinn og lögskýringargögn Alþingis í Vergo

Heimildasafn Vergo hefur stækkað um meira en helming. Nú finnur þú þar mál Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins, gerðir ESB og EES-samninginn og lögskýringargögn Alþingis: frumvörp með greinargerðum, nefndarálit, breytingartillögur og umsagnir, tengd lögunum sem þau urðu að. Samtals eru heimildirnar orðnar yfir 300 þúsund í meira en 120 gagnasöfnum. Lögfinnur, Claude og ChatGPT leita í þeim öllum.

Lögskýringargögn Alþingis

Þegar túlka þarf lagaákvæði er oft spurt hvað löggjafinn ætlaði sér. Nú eru gögn þingmálanna frá Alþingi í Vergo, aftur til 1907.

  • Lögskýringargögn laganna: á hverjum lögum í lagasafninu er flipinn Lögskýringargögn með þingmálinu sem setti lögin og þeim sem breyttu þeim. Þú getur líka skoðað gögnin fyrir eina grein.

  • Þingmálin sjálf: hvert mál með öllum þingskjölum sínum, umsögnum og erindum til nefnda og lokaatkvæðagreiðslu, og hvernig málið endaði: samþykkt sem lög, fellt, dregið til baka eða ekki útrætt.

  • Leit í greinargerðum: greinargerðir frumvarpa, nefndarálit og breytingartillögur eru heimildir í leitinni eins og dómar og úrskurðir.

Evrópudómstóllinn

Öll mál Evrópudómstólsins sem til eru á ensku, tæplega 37 þúsund: dómar og úrskurðir Dómstólsins og Almenna dómstólsins, álit aðallögsögumanna og mál Starfsmannadómstólsins. Gögnin koma beint frá útgáfuskrifstofu ESB.

  • Flokkun: við hvern dóm sérðu réttarsvið, efnisorð, málsmeðferð, dómsdeild og land.

  • Tilvitnanir: á flipanum Tilvitnanir sérðu hvaða dóma og gerðir dómurinn vísar í, hvaða gerðir hann túlkar, ógildir eða staðfestir, og hvaða síðari dómar vísa í hann.

EFTA-dómstóllinn

Öll mál EFTA-dómstólsins frá 1994, rúmlega 700 skjöl: dómar og ráðgefandi álit, úrskurðir, skýrslur fyrir munnlegan málflutning og beiðnir dómstóla um ráðgefandi álit. Skýrslurnar og beiðnirnar lýsa málsatvikum, rökum aðila og spurningum dómstólsins sem vísaði málinu. Í málum sem enn eru til meðferðar eru þær eini textinn sem til er.

  • Á íslensku: mál sem rekin voru á íslensku, til dæmis þegar íslenskur dómstóll óskaði ráðgefandi álits, eru á íslensku með enska textann við hliðina. Önnur mál eru á ensku.

  • Flokkun: við hvert mál sérðu réttarsvið, tegund máls (ráðgefandi álit eða beint mál), land og dómstólinn sem vísaði málinu.

  • Tilvitnanir: á flipanum Tilvitnanir sérðu hvaða ESB-gerðir, dóma Evrópudómstólsins og fyrri mál EFTA-dómstólsins skjalið vísar í, og hvaða síðari mál vísa í dóminn. Við ESB-gerðir og dóma Evrópudómstólsins sérðu líka þau mál EFTA-dómstólsins sem vísa í þá.

ESB/EES-gerðir

Undir Lög og reglugerðir eru nú ESB/EES-gerðir, um 45 þúsund talsins, á ensku:

  • Reglugerðir, tilskipanir og ákvarðanir ESB sem eru í gildi, í gildandi samsteyptri útgáfu, með inngangsorðum gerðarinnar eins og hún var birt.

  • Sáttmálarnir grein fyrir grein, til dæmis 101. gr. sáttmálans um starfshætti ESB, og EES-samningurinn með bókunum og viðaukum.

  • Eldri gerðir sem dómarnir vísa í, svo tilvísun dóms í niðurfellda gerð opnast líka í Vergo. Þær eru merktar Fallin úr gildi og flokkaðar sér, sem Felldar gerðir.

Við hverja gerð sérðu stöðu hennar, hvort sameiginlega EES-nefndin hafi tekið hana upp í EES-samninginn, og flokkun hennar. Á flipanum Tilvitnanir sérðu hvaða eldri gerðum hún breytir eða fellir úr gildi og á hvaða sáttmálagreinum hún byggir, og hvaða dómar og nýrri gerðir vísa í hana.

Hafðu í huga: ESB-gerð bindur Ísland aðeins ef hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn og innleidd í íslenskan rétt. Textinn er enska útgáfan frá ESB, ekki íslenska þýðingin. Hún kemur síðar.

Lögfinnur, Claude og ChatGPT

Lögfinnur og gervigreindir sem eru tengdar við Vergo leita í nýju heimildunum:

  • Þær leita í málum Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins og í ESB-gerðunum á ensku, þótt spurt sé á íslensku.

  • Þær rekja tilvitnanir: hvaða dómar túlka tiltekna gerð, og hvaða gerðir breyttu henni eða felldu hana úr gildi.

  • Þær lesa lögskýringargögn laga eða einstakrar greinar: greinargerð frumvarpsins og nefndarálitin.

Dæmi:

  • „Hvað sagði í greinargerð frumvarpsins um 3. gr. skaðabótalaga?“

  • „Hvaða dómar Evrópudómstólsins túlka 82. gr. persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679?“

  • „Hvað sagði EFTA-dómstóllinn um ábyrgð ríkisins á innstæðutryggingum í Icesave-málinu?“

  • „Hefur tilskipun 2001/23/EB um aðilaskipti að fyrirtækjum verið tekin upp í EES-samninginn?“

Ef gervigreindin sér ekki nýju möguleikana, aftengdu Vergo og tengdu aftur í stillingum hennar, t.d. Settings › Connectors í Claude. Þá sækir hún nýjasta lista Vergo yfir það sem hún getur gert.

Framundan

  • ESB/EES-gerðir á íslensku: við höfum óskað eftir aðgangi að EES-gagnagrunni Stjórnarráðsins og að íslensku þýðingunum hjá EFTA. Þá bætast við íslenskir titlar, útdrættir og staða hverrar gerðar á Íslandi, og íslenski textinn eins og hann birtist í EES-viðbætinum.

Innheimtukerfið: skuldabréf, skilagreinar og níu ný bréf

Innheimtukerfi Vergo hefur fengið sína stærstu uppfærslu til þessa. Nú getur þú innheimt skuldabréf, gert upp við kröfuhafa með skilagreinum, haldið utan um þrjár tegundir kostnaðar og valið úr níu nýjum bréfum, t.d. greiðsluáskorun vegna veðskuldabréfs, nauðungarsölubeiðni og kröfulýsingu í þrotabú. Stofan getur líka búið til sín eigin bréf.

Skuldabréf

Innheimtukrafa getur nú verið skuldabréf. Þú skráir skilmála bréfsins og Vergo býr til kröfu fyrir hvern gjalddaga sem er í vanskilum, með samningsvöxtum, verðbótum og vanskilavöxtum.

  • Endurgreiðsla: jafnar afborganir, jafnar greiðslur eða fastar greiðslur. Vextir geta greiðst á sömu gjalddögum og afborganir eða öðrum.

  • Vextir og verðtrygging: fastir vextir, dráttarvextir eða vaxtatafla, og verðtrygging með vísitölu neysluverðs.

  • Gjaldfelling: innheimtu nýja gjalddaga jafnóðum, gjalddaga til tiltekins dags, eða gjaldfelldu bréfið allt.

  • Greiðslur umfram gjaldfallið: veldu hvort þær lækka greiðslubyrði, greiða næstu gjalddaga eða stytta lánstímann.

  • Nýir gjalddagar bætast við sjálfkrafa þegar þeir falla í gjalddaga.

Þrjár tegundir kostnaðar

Kostnaður skiptist nú í þrjár tegundir, hver með sitt spjald á innheimtukröfunni. Tegundin ræður því hver fær peningana á skilagrein og hvort virðisaukaskattur leggst á.

  • Áfallinn kostnaður: vinna lögmannsins, t.d. innheimtuþóknun og bréf.

  • Útlagður kostnaður (nýtt): greiðslur til annarra vegna málsins, t.d. fjárnámsgjald eða birting stefnu, með kvittunarnúmeri, viðtakanda og virðisaukaskatti af kvittun. Lögmaðurinn fær hann endurgreiddan á skilagrein.

  • Kostnaður kröfuhafa (nýtt): kostnaður sem kröfuhafinn bar sjálfur, t.d. áður en málið kom til lögmannsins. Á hann leggst hvorki virðisaukaskattur né vextir.

Virðisaukaskattur: Vergo les úr tengilið kröfuhafans hvort hann er á VSK-skrá og ákveður út frá því hvort skuldarinn greiðir virðisaukaskattinn eða hann dregst frá hlut kröfuhafa. Þú getur breytt því á hverjum kostnaði.

Innheimtuþóknun er reiknuð eftir þrepum gjaldskrárinnar og uppfærist sjálfkrafa þegar kröfur, vextir eða innborganir breytast. Þú getur breytt þrepunum fyrir eina innheimtukröfu eða sett fasta fjárhæð, t.d. ef þóknunin er umsamin eða dæmd.

Gjaldskráin hefur fengið liði fyrir útlagðan kostnað, t.d. fjárnámsgjald, nauðungarsölugjald og þinglýsingargjald. Á liðum sem stofan notar ekki getur þú slökkt.

Innborganir og afskriftir

  • Afskriftir: skráðu eftirgjöf eða leiðréttingu sem lækkar skuldina án þess að peningar komi inn.

  • Ráðstöfun greiðslna: veldu hvort vextir eða höfuðstóll greiðast fyrst, í hvaða röð kröfurnar greiðast og hvort kostnaður greiðist á undan. Með reglum getur þú látið greiðslu fara fyrst inn á tiltekna kröfu eða tiltekinn kostnað.

  • Forskoðun sýnir hvert greiðslan fer áður en hún er vistuð.

  • Greitt beint til kröfuhafa og Lækkar grunn innheimtuþóknunar eru nýir hakreitir á innborgunum.

  • Greiðslur eru gerðar upp í heilum krónum.

Skilagreinar

Gerðu upp við kröfuhafa með hlutaskilagrein á meðan innheimtan stendur yfir og lokaskilagrein í lokin. Vergo reiknar hvað fer til lögmanns, hvað er skilað til kröfuhafa og hvað er dregið af í staðgreiðslu af vöxtum, og tekur tillit til þess hvort kröfuhafi er á VSK-skrá.

  • Þú velur hvaða innborganir skilagreinin gerir upp og getur skoðað hana sem PDF áður en hún er gefin út.

  • Texta einstakrar skilagreinar má breyta áður en hún er gefin út, t.d. til að bæta við athugasemd.

  • Útlit skilagreina er stillt á sama hátt og bréfsniðmát.

Níu ný bréf

Við stöðluðu bréfin hafa bæst:

  • Fyrir skuldabréf: Innheimtubréf - skuldabréf, Greiðsluáskorun - skuldabréf, Greiðsluáskorun - veðskuldabréf og Nauðungarsölubeiðni - veðskuldabréf.

  • Í löginnheimtu: Tilkynning um málshöfðun, Nauðungarsölubeiðni - fjárnám, Greiðsluáskorun skv. 65. gr. gþl., Krafa um gjaldþrotaskipti og Kröfulýsing í þrotabú.

Glugginn sem bréf eru búin til í hefur líka breyst:

  • Staða miðuð við: veldu daginn sem fjárhæðir bréfsins miðast við, t.d. úrskurðardag í kröfulýsingu í þrotabú.

  • Viðtakandi: stílaðu bréfið á hvaða aðila innheimtukröfunnar sem er, t.d. ábyrgðarmann eða veðsala.

  • Bóka kostnað: sjáðu fjárhæð hvers gjaldliðar og veldu hverja á að bóka. Sumir liðir bjóðast án haks, t.d. nauðungarsölugjald fyrir lausafé.

  • Glugginn spyr aðeins um það sem bréfið þarf.

Eigin bréf

  • Afrita sem nýtt bréf: búðu til eigið bréf út frá stöðluðu bréfi og breyttu því að vild.

  • Eigin reitir: láttu bréfagluggann spyrja um upplýsingar sem eru ekki skráðar í Vergo, t.d. þingfestingardag eða tilvísun kröfuhafa.

  • Reitir og fylgiskjöl: ráddu heitum reitanna, hjálpartexta og sjálfgefnum gildum, og hvort skrá yfir framlögð skjöl og birtingarvottorð fylgja bréfinu.

  • Langar töflur halda áfram á næstu síðu, línu fyrir línu.

Ef stofan hefur breytt stöðluðu bréfi heldur hún sinni útgáfu, og endurbætur Vergo á því bréfi ná ekki til hennar. Í „Útgáfusaga“ bréfsins sérðu nýjustu útgáfu Vergo og getur endurstillt bréfið á hana.

Nýjar hjálpargreinar útskýra innheimtukerfið skref fyrir skref, t.d. Að stofna innheimtukröfu, Skuldabréf, Kostnaður og gjaldskrá, Skilagreinar og Hvernig virka bréfsniðmát?

Gervigreindin vinnur nú verkin í Vergo: mál, skjöl, undirritanir og kröfur

Claude, ChatGPT og aðrar gervigreindir sem eru tengdar við Vergo hafa hingað til getað leitað í réttarheimildum, lesið mál og skráð tíma. Nú geta þær líka unnið verkin sjálfar: stofnað mál, búið til skjöl úr sniðmátum og sent þau í undirritun, skráð fyrirtökur og haldið utan um skaðabóta- og innheimtukröfur. Alltaf með þínum aðgangi í Vergo, og aðeins það sem þú og fyrirtækið leyfið.

Mál og dagleg vinna

  • Ný mál: stofnar mál með umbjóðendum, gagnaðilum, málaflokki, merkimiðum og viðbótum. Sjálfgefin verkefni málaflokksins fylgja eins og í Vergo.

  • Breytingar á málum: breytir heiti, lýsingu, ábyrgðarmanni og tengiliðum, lokar málum eða setur í bið.

  • Athugasemdir: skrifar athugasemd á mál eða verkefni, t.d. samantekt af fundi eða símtali.

  • Málskostnaður: leiðréttir eða eyðir tímaskráningum, föstum gjöldum og útlögðum kostnaði sem ekki eru komin á reikning, og tekur saman hvað á eftir að reikningsfæra, eftir málum og greiðendum.

  • Fyrirtökur og fundir: skráir viðburði á mál í dagatal Vergo, færir þá eða fellir niður.

Skjöl og undirritanir

  • Skjöl úr sniðmátum: býr til skjal á málið úr sniðmátum stofunnar, sem Word eða PDF, og segir þér fyrir fram hvaða upplýsingar vantar á málið, t.d. netfang eða kennitölu umbjóðanda.

  • Ný sniðmát: skrifar sniðmát með þér, með réttum færibreytum og sniði, yfirfer þau og vistar í sniðmátum stofunnar, eða lagar sniðmát sem fyrir eru. Til þess þarf heimild til að sýsla með sniðmát í Vergo.

  • Rafræn undirritun: sendir skjöl málsins í undirritun með rafrænum skilríkjum, úr Vergo eða úr SharePoint-möppu málsins ef þú mátt opna þau þar, minnir þá á sem eiga eftir að undirrita og segir þér hverjir hafa undirritað.

Kröfur og vextir

  • Skaðabótakröfur: stofnar og uppfærir kröfur með tjónsdegi, stöðugleikapunkti, miskastigi, örorkustigi og tekjum, og sýnir útreikning Vergo á hverjum lið skaðabótalaga með vöxtum.

  • Innheimta: stofnar innheimtukröfur með kröfuhafa, skuldara og kröfuliðum, og skráir innborganir.

  • Vaxtareiknir: reiknar dráttarvexti, skaðabótavexti eða fasta vexti með vöxtum Seðlabankans, eins og vaxtareiknir Vergo.

Dæmi um spurningar

  • „Stofnaðu mál fyrir Jón Jónsson gegn Tryggingafélaginu hf., málaflokkur skaðabótamál, og skrifaðu athugasemd með samantekt af fundinum.“

  • „Búðu til umboð á mál 2026-123 úr sniðmátinu okkar, sem PDF, og sendu það umbjóðandanum í undirritun.“

  • „Skráðu fyrirtöku í máli 2026-123 í Héraðsdómi Reykjavíkur 12. nóvember kl. 9:15.“

  • „Reiknaðu dráttarvexti af 1.500.000 kr. frá 1. mars 2025 til dagsins í dag.“

  • „Hjálpaðu mér að skrifa sniðmát fyrir kröfubréf með réttum færibreytum.“

Þú ræður áfram

  • Gervigreindin er beðin um að staðfesta allar breytingar við þig áður en hún gerir þær, og að fá skýrt já áður en hún sendir skjal í undirritun, því undirritendur fá boðið strax.

  • Hún eyðir hvorki málum, verkefnum, kröfum né sniðmátum, og breytir engu í SharePoint: skjöl sem hún býr til vistast í Vergo.

  • Hún getur aldrei meira en þú mátt í Vergo. Til að senda í undirritun eða breyta sniðmátum þarft þú sjálf(ur) heimild til þess.

Fyrir stjórnendur: nýju möguleikarnir eru undir Stillingar › Tengingar › Fyrirtækjatengingar: Mál (stofna og breyta), Skjöl (stofna úr sniðmátum, sýsla með sniðmát), Viðburðir, Undirritanir og Kröfur. Fyrirtæki sem leyfa allt fá þá sjálfkrafa. Önnur bæta þeim við.

Til að fá nýju möguleikana þarf að tengjast aftur: aftengdu Vergo og tengdu aftur í stillingum gervigreindarinnar, t.d. Settings › Connectors í Claude, og hakaðu við það sem hún má gera.

Nánari upplýsingar eru í hjálpargreininni Að tengja AI-biðlara við Vergo og á vergo.is.

Earlier updates