Að tengja Outlook við Vergo
Fyrir uppástungur um tímaskráningar og fleira.
Written By Kjartan Valur Þórðarson
Last updated 1 day ago
Það er auðvelt að tengja Microsoft Outlook við Vergo til að leyfa Vergo að stinga upp á tillögum að tímaskráningum út frá móttakendum eða sendendum af tölvupósti og/eða viðburðum í dagatalinu þínu.
Það er svo væntanlegt að tenging geri kleift að þú getir séð og skráð Outlook viðburði beint inni í Vergo.
Mikilvægt er að umbjóðendur/viðskiptavinir séu skráðir með rétt email í Vergo svo hægt sé að tengja þá pósta eða viðburði.
Hvar stilli ég tenginguna?
Farðu í Stillingar í aðalvalmynd neðst til vinstri.
Veldu "Tengingar" í valmyndinni.
Tengja Microsoft Outlook
Finndu Outlook í listanum og smelltu á "Tengjast".

Stillingar fyrir tengingu
Virkja dagatalstengingu:
Ef dagatalstenging er virk þá finnur Vergo uppástungur að tímaskráningum út frá skráðum aðilum í viðburðum sem eru skráðir í Outlook dagatalið hjá þér. Þetta er fundið út frá tölvupóstfangi sem þarf að passa við skráningu á viðskiptavin/umbjóðanda í Vergo.
Virkja tölvupósttengingu:
Ef tölvupósttenging er virk fylgist Vergo með póstum sem þú hefur móttekið eða sent til að stinga upp á tillögum að tímaskráningu.
Vergo hefur ekki aðgang að innihald pósta eða viðhengjum, aðeins viðtakendur, sendandi, fyrirsögn (subject) og dagsetning.

Stillingar fyrir aðgang
Veldu hvaða Office365 reikning þú vilt tengja.

Veita leyfi
Þú þarft að veita Vergo leyfi til að sækja og senda gögn inn á Office365 reikninginn þinn

Maintain access to data you have given it access to
Þessi réttindi eru til þess að Vergo geti haldið lifandi tengingu við Office 365 aðganginn þinn.
Read your profile
Vergo getur séð nafn þitt og netfang hjá Office 365.
Read user basic mail
Þetta þarf svo hægt sé að nýta tölvuóstsamskipti til þess að útbúa tillögur að tímaskráningum. Athugið að það er ekki verið að fá aðgang að innihaldi pósta eða viðhengja. Aðeins takmörkuð réttindi til að sjá sendanda og viðtakandur og fyrirsögn (subject) bréfa.
Have full access to your calendars
Þetta er til þess að Vergo geti fundið tillögur að tímaskráiningu út frá dagatali þínu. Svo er væntanlegt að geta séð atburði úr dagatalinu þínu beint inni í Vergo og einnig stofnað nýja atburði í dagatalið úr Vergo.
Ef krafist er samþykki kerfisstjóra (Administrator)
Ef krafist er samþykki kerfisstjóra þá þarftu að setja einhverja lýsingu afhverju þú þarft aðgang og smella á "Request approval"

Þá fær kerfisstjóri póst um að þú hafir beðið um aðgang. Hann getur loggað sig inn í Azure Entra aðganginn og þar undir "Enterprise applications" -> "Admin consent requests" ætti að koma beiðnin þín sem hann getur samþykkt.

Þegar kerfisstjóri hefur samþykkt þá færð þú tölvupóst um að samþykki hafi verið veitt og þá getur þú farið aftur í "Stillangar" -> "Tengingar" og prófað aftur að tengjast.
Lifandi tenging
Vergo hefur lifandi tengingu við Microsoft Outlook og veit um leið og eitthvað gerist í tölvupóstinum þínum.
Uppkast, sendur eða lesinn póstur mun koma sem tillaga að tímaskráningu í Vergo.
Athugið að ólesinn póstur veldur ekki tillögum að tímaskráningum.
Vergo hefur ekki aðgang að innihaldi tölvupósta eða viðhengjum
Vergo sækir aðeins sendanda, viðtakendur og fyrirsögn (subject) pósts. Meginmál (body) pósts er hvorki sótt né geymt enda hefur Vergo ekki aðgang að þeim upplýsingum.
Öryggi og sýnileiki pósts
Aðeins þú getur séð tillögur sem eru unnar úr tölvupóstinum þínum. Aðrir notendur, stjórnendur eða kerfisstjórar fyrirtækisins hafa ekki aðgang að þínum tillögum.
Aftengja Outlook frá Vergo
Til að aftengja Outlook, farðu í nafnið þitt, veldu "Tengingar" og smelltu á "Breyta" við Outlook tenginguna.
Smelltu á "Aftengjast".
Aftengjast:
Tenging við Microsoft rofnar og engin frekari gögn verða sótt. Allar tillögur að tímaskráningu sem þegar hafa verið gerðar verða áfram til í Vergo.
Ef tenging mistókst
Ef tenging mistókst, gæti Outlook verið hýst með þeim hætti sem ekki er hægt að tengja við Vergo. Vergo notar Microsoft Graph API til að eiga örugg samskipti við Outlook tölvupóst og dagatöl. Þetta er aðeins mögulegt ef Outlook er hýst á tiltekinn hátt, svo sem:
Office 365
Exchange Online (hýst í Azure)
Einstaklingsaðgangar á Outlook.com
Ekki er hægt að tengja eldri uppsetningu af Outlook sem hýst er innanhúss í non-hybrid deployment. Flestir þjónustuveitendur bjóða notendum að færa sig inn í skýjalausnir sem styðja Microsoft Graph API.