Innheimtukerfið: skuldabréf, skilagreinar og níu ný bréf

Innheimtukerfi Vergo hefur fengið sína stærstu uppfærslu til þessa. Nú getur þú innheimt skuldabréf, gert upp við kröfuhafa með skilagreinum, haldið utan um þrjár tegundir kostnaðar og valið úr níu nýjum bréfum, t.d. greiðsluáskorun vegna veðskuldabréfs, nauðungarsölubeiðni og kröfulýsingu í þrotabú. Stofan getur líka búið til sín eigin bréf.
Skuldabréf
Innheimtukrafa getur nú verið skuldabréf. Þú skráir skilmála bréfsins og Vergo býr til kröfu fyrir hvern gjalddaga sem er í vanskilum, með samningsvöxtum, verðbótum og vanskilavöxtum.
Endurgreiðsla: jafnar afborganir, jafnar greiðslur eða fastar greiðslur. Vextir geta greiðst á sömu gjalddögum og afborganir eða öðrum.
Vextir og verðtrygging: fastir vextir, dráttarvextir eða vaxtatafla, og verðtrygging með vísitölu neysluverðs.
Gjaldfelling: innheimtu nýja gjalddaga jafnóðum, gjalddaga til tiltekins dags, eða gjaldfelldu bréfið allt.
Greiðslur umfram gjaldfallið: veldu hvort þær lækka greiðslubyrði, greiða næstu gjalddaga eða stytta lánstímann.
Nýir gjalddagar bætast við sjálfkrafa þegar þeir falla í gjalddaga.
Þrjár tegundir kostnaðar
Kostnaður skiptist nú í þrjár tegundir, hver með sitt spjald á innheimtukröfunni. Tegundin ræður því hver fær peningana á skilagrein og hvort virðisaukaskattur leggst á.
Áfallinn kostnaður: vinna lögmannsins, t.d. innheimtuþóknun og bréf.
Útlagður kostnaður (nýtt): greiðslur til annarra vegna málsins, t.d. fjárnámsgjald eða birting stefnu, með kvittunarnúmeri, viðtakanda og virðisaukaskatti af kvittun. Lögmaðurinn fær hann endurgreiddan á skilagrein.
Kostnaður kröfuhafa (nýtt): kostnaður sem kröfuhafinn bar sjálfur, t.d. áður en málið kom til lögmannsins. Á hann leggst hvorki virðisaukaskattur né vextir.
Virðisaukaskattur: Vergo les úr tengilið kröfuhafans hvort hann er á VSK-skrá og ákveður út frá því hvort skuldarinn greiðir virðisaukaskattinn eða hann dregst frá hlut kröfuhafa. Þú getur breytt því á hverjum kostnaði.
Innheimtuþóknun er reiknuð eftir þrepum gjaldskrárinnar og uppfærist sjálfkrafa þegar kröfur, vextir eða innborganir breytast. Þú getur breytt þrepunum fyrir eina innheimtukröfu eða sett fasta fjárhæð, t.d. ef þóknunin er umsamin eða dæmd.
Gjaldskráin hefur fengið liði fyrir útlagðan kostnað, t.d. fjárnámsgjald, nauðungarsölugjald og þinglýsingargjald. Á liðum sem stofan notar ekki getur þú slökkt.
Innborganir og afskriftir
Afskriftir: skráðu eftirgjöf eða leiðréttingu sem lækkar skuldina án þess að peningar komi inn.
Ráðstöfun greiðslna: veldu hvort vextir eða höfuðstóll greiðast fyrst, í hvaða röð kröfurnar greiðast og hvort kostnaður greiðist á undan. Með reglum getur þú látið greiðslu fara fyrst inn á tiltekna kröfu eða tiltekinn kostnað.
Forskoðun sýnir hvert greiðslan fer áður en hún er vistuð.
Greitt beint til kröfuhafa og Lækkar grunn innheimtuþóknunar eru nýir hakreitir á innborgunum.
Greiðslur eru gerðar upp í heilum krónum.
Skilagreinar
Gerðu upp við kröfuhafa með hlutaskilagrein á meðan innheimtan stendur yfir og lokaskilagrein í lokin. Vergo reiknar hvað fer til lögmanns, hvað er skilað til kröfuhafa og hvað er dregið af í staðgreiðslu af vöxtum, og tekur tillit til þess hvort kröfuhafi er á VSK-skrá.
Þú velur hvaða innborganir skilagreinin gerir upp og getur skoðað hana sem PDF áður en hún er gefin út.
Texta einstakrar skilagreinar má breyta áður en hún er gefin út, t.d. til að bæta við athugasemd.
Útlit skilagreina er stillt á sama hátt og bréfsniðmát.
Níu ný bréf
Við stöðluðu bréfin hafa bæst:
Fyrir skuldabréf: Innheimtubréf - skuldabréf, Greiðsluáskorun - skuldabréf, Greiðsluáskorun - veðskuldabréf og Nauðungarsölubeiðni - veðskuldabréf.
Í löginnheimtu: Tilkynning um málshöfðun, Nauðungarsölubeiðni - fjárnám, Greiðsluáskorun skv. 65. gr. gþl., Krafa um gjaldþrotaskipti og Kröfulýsing í þrotabú.
Glugginn sem bréf eru búin til í hefur líka breyst:
Staða miðuð við: veldu daginn sem fjárhæðir bréfsins miðast við, t.d. úrskurðardag í kröfulýsingu í þrotabú.
Viðtakandi: stílaðu bréfið á hvaða aðila innheimtukröfunnar sem er, t.d. ábyrgðarmann eða veðsala.
Bóka kostnað: sjáðu fjárhæð hvers gjaldliðar og veldu hverja á að bóka. Sumir liðir bjóðast án haks, t.d. nauðungarsölugjald fyrir lausafé.
Glugginn spyr aðeins um það sem bréfið þarf.
Eigin bréf
Afrita sem nýtt bréf: búðu til eigið bréf út frá stöðluðu bréfi og breyttu því að vild.
Eigin reitir: láttu bréfagluggann spyrja um upplýsingar sem eru ekki skráðar í Vergo, t.d. þingfestingardag eða tilvísun kröfuhafa.
Reitir og fylgiskjöl: ráddu heitum reitanna, hjálpartexta og sjálfgefnum gildum, og hvort skrá yfir framlögð skjöl og birtingarvottorð fylgja bréfinu.
Langar töflur halda áfram á næstu síðu, línu fyrir línu.
Ef stofan hefur breytt stöðluðu bréfi heldur hún sinni útgáfu, og endurbætur Vergo á því bréfi ná ekki til hennar. Í „Útgáfusaga“ bréfsins sérðu nýjustu útgáfu Vergo og getur endurstillt bréfið á hana.
Nýjar hjálpargreinar útskýra innheimtukerfið skref fyrir skref, t.d. Að stofna innheimtukröfu, Skuldabréf, Kostnaður og gjaldskrá, Skilagreinar og Hvernig virka bréfsniðmát?