Gervigreindin vinnur nú verkin í Vergo: mál, skjöl, undirritanir og kröfur

Claude, ChatGPT og aðrar gervigreindir sem eru tengdar við Vergo hafa hingað til getað leitað í réttarheimildum, lesið mál og skráð tíma. Nú geta þær líka unnið verkin sjálfar: stofnað mál, búið til skjöl úr sniðmátum og sent þau í undirritun, skráð fyrirtökur og haldið utan um skaðabóta- og innheimtukröfur. Alltaf með þínum aðgangi í Vergo, og aðeins það sem þú og fyrirtækið leyfið.
Mál og dagleg vinna
Ný mál: stofnar mál með umbjóðendum, gagnaðilum, málaflokki, merkimiðum og viðbótum. Sjálfgefin verkefni málaflokksins fylgja eins og í Vergo.
Breytingar á málum: breytir heiti, lýsingu, ábyrgðarmanni og tengiliðum, lokar málum eða setur í bið.
Athugasemdir: skrifar athugasemd á mál eða verkefni, t.d. samantekt af fundi eða símtali.
Málskostnaður: leiðréttir eða eyðir tímaskráningum, föstum gjöldum og útlögðum kostnaði sem ekki eru komin á reikning, og tekur saman hvað á eftir að reikningsfæra, eftir málum og greiðendum.
Fyrirtökur og fundir: skráir viðburði á mál í dagatal Vergo, færir þá eða fellir niður.
Skjöl og undirritanir
Skjöl úr sniðmátum: býr til skjal á málið úr sniðmátum stofunnar, sem Word eða PDF, og segir þér fyrir fram hvaða upplýsingar vantar á málið, t.d. netfang eða kennitölu umbjóðanda.
Ný sniðmát: skrifar sniðmát með þér, með réttum færibreytum og sniði, yfirfer þau og vistar í sniðmátum stofunnar, eða lagar sniðmát sem fyrir eru. Til þess þarf heimild til að sýsla með sniðmát í Vergo.
Rafræn undirritun: sendir skjöl málsins í undirritun með rafrænum skilríkjum, úr Vergo eða úr SharePoint-möppu málsins ef þú mátt opna þau þar, minnir þá á sem eiga eftir að undirrita og segir þér hverjir hafa undirritað.
Kröfur og vextir
Skaðabótakröfur: stofnar og uppfærir kröfur með tjónsdegi, stöðugleikapunkti, miskastigi, örorkustigi og tekjum, og sýnir útreikning Vergo á hverjum lið skaðabótalaga með vöxtum.
Innheimta: stofnar innheimtukröfur með kröfuhafa, skuldara og kröfuliðum, og skráir innborganir.
Vaxtareiknir: reiknar dráttarvexti, skaðabótavexti eða fasta vexti með vöxtum Seðlabankans, eins og vaxtareiknir Vergo.
Dæmi um spurningar
„Stofnaðu mál fyrir Jón Jónsson gegn Tryggingafélaginu hf., málaflokkur skaðabótamál, og skrifaðu athugasemd með samantekt af fundinum.“
„Búðu til umboð á mál 2026-123 úr sniðmátinu okkar, sem PDF, og sendu það umbjóðandanum í undirritun.“
„Skráðu fyrirtöku í máli 2026-123 í Héraðsdómi Reykjavíkur 12. nóvember kl. 9:15.“
„Reiknaðu dráttarvexti af 1.500.000 kr. frá 1. mars 2025 til dagsins í dag.“
„Hjálpaðu mér að skrifa sniðmát fyrir kröfubréf með réttum færibreytum.“
Þú ræður áfram
Gervigreindin er beðin um að staðfesta allar breytingar við þig áður en hún gerir þær, og að fá skýrt já áður en hún sendir skjal í undirritun, því undirritendur fá boðið strax.
Hún eyðir hvorki málum, verkefnum, kröfum né sniðmátum, og breytir engu í SharePoint: skjöl sem hún býr til vistast í Vergo.
Hún getur aldrei meira en þú mátt í Vergo. Til að senda í undirritun eða breyta sniðmátum þarft þú sjálf(ur) heimild til þess.
Fyrir stjórnendur: nýju möguleikarnir eru undir Stillingar › Tengingar › Fyrirtækjatengingar: Mál (stofna og breyta), Skjöl (stofna úr sniðmátum, sýsla með sniðmát), Viðburðir, Undirritanir og Kröfur. Fyrirtæki sem leyfa allt fá þá sjálfkrafa. Önnur bæta þeim við.
Til að fá nýju möguleikana þarf að tengjast aftur: aftengdu Vergo og tengdu aftur í stillingum gervigreindarinnar, t.d. Settings › Connectors í Claude, og hakaðu við það sem hún má gera.
Nánari upplýsingar eru í hjálpargreininni Að tengja AI-biðlara við Vergo og á vergo.is.