Skip to main content

Evrópurétturinn og lögskýringargögn Alþingis í Vergo

Heimildasafn Vergo hefur stækkað um meira en helming. Nú finnur þú þar mál Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins, gerðir ESB og EES-samninginn og lögskýringargögn Alþingis: frumvörp með greinargerðum, nefndarálit, breytingartillögur og umsagnir, tengd lögunum sem þau urðu að. Samtals eru heimildirnar orðnar yfir 300 þúsund í meira en 120 gagnasöfnum. Lögfinnur, Claude og ChatGPT leita í þeim öllum.

Lögskýringargögn Alþingis

Þegar túlka þarf lagaákvæði er oft spurt hvað löggjafinn ætlaði sér. Nú eru gögn þingmálanna frá Alþingi í Vergo, aftur til 1907.

  • Lögskýringargögn laganna: á hverjum lögum í lagasafninu er flipinn Lögskýringargögn með þingmálinu sem setti lögin og þeim sem breyttu þeim. Þú getur líka skoðað gögnin fyrir eina grein.

  • Þingmálin sjálf: hvert mál með öllum þingskjölum sínum, umsögnum og erindum til nefnda og lokaatkvæðagreiðslu, og hvernig málið endaði: samþykkt sem lög, fellt, dregið til baka eða ekki útrætt.

  • Leit í greinargerðum: greinargerðir frumvarpa, nefndarálit og breytingartillögur eru heimildir í leitinni eins og dómar og úrskurðir.

Evrópudómstóllinn

Öll mál Evrópudómstólsins sem til eru á ensku, tæplega 37 þúsund: dómar og úrskurðir Dómstólsins og Almenna dómstólsins, álit aðallögsögumanna og mál Starfsmannadómstólsins. Gögnin koma beint frá útgáfuskrifstofu ESB.

  • Flokkun: við hvern dóm sérðu réttarsvið, efnisorð, málsmeðferð, dómsdeild og land.

  • Tilvitnanir: á flipanum Tilvitnanir sérðu hvaða dóma og gerðir dómurinn vísar í, hvaða gerðir hann túlkar, ógildir eða staðfestir, og hvaða síðari dómar vísa í hann.

EFTA-dómstóllinn

Öll mál EFTA-dómstólsins frá 1994, rúmlega 700 skjöl: dómar og ráðgefandi álit, úrskurðir, skýrslur fyrir munnlegan málflutning og beiðnir dómstóla um ráðgefandi álit. Skýrslurnar og beiðnirnar lýsa málsatvikum, rökum aðila og spurningum dómstólsins sem vísaði málinu. Í málum sem enn eru til meðferðar eru þær eini textinn sem til er.

  • Á íslensku: mál sem rekin voru á íslensku, til dæmis þegar íslenskur dómstóll óskaði ráðgefandi álits, eru á íslensku með enska textann við hliðina. Önnur mál eru á ensku.

  • Flokkun: við hvert mál sérðu réttarsvið, tegund máls (ráðgefandi álit eða beint mál), land og dómstólinn sem vísaði málinu.

  • Tilvitnanir: á flipanum Tilvitnanir sérðu hvaða ESB-gerðir, dóma Evrópudómstólsins og fyrri mál EFTA-dómstólsins skjalið vísar í, og hvaða síðari mál vísa í dóminn. Við ESB-gerðir og dóma Evrópudómstólsins sérðu líka þau mál EFTA-dómstólsins sem vísa í þá.

ESB/EES-gerðir

Undir Lög og reglugerðir eru nú ESB/EES-gerðir, um 45 þúsund talsins, á ensku:

  • Reglugerðir, tilskipanir og ákvarðanir ESB sem eru í gildi, í gildandi samsteyptri útgáfu, með inngangsorðum gerðarinnar eins og hún var birt.

  • Sáttmálarnir grein fyrir grein, til dæmis 101. gr. sáttmálans um starfshætti ESB, og EES-samningurinn með bókunum og viðaukum.

  • Eldri gerðir sem dómarnir vísa í, svo tilvísun dóms í niðurfellda gerð opnast líka í Vergo. Þær eru merktar Fallin úr gildi og flokkaðar sér, sem Felldar gerðir.

Við hverja gerð sérðu stöðu hennar, hvort sameiginlega EES-nefndin hafi tekið hana upp í EES-samninginn, og flokkun hennar. Á flipanum Tilvitnanir sérðu hvaða eldri gerðum hún breytir eða fellir úr gildi og á hvaða sáttmálagreinum hún byggir, og hvaða dómar og nýrri gerðir vísa í hana.

Hafðu í huga: ESB-gerð bindur Ísland aðeins ef hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn og innleidd í íslenskan rétt. Textinn er enska útgáfan frá ESB, ekki íslenska þýðingin. Hún kemur síðar.

Lögfinnur, Claude og ChatGPT

Lögfinnur og gervigreindir sem eru tengdar við Vergo leita í nýju heimildunum:

  • Þær leita í málum Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins og í ESB-gerðunum á ensku, þótt spurt sé á íslensku.

  • Þær rekja tilvitnanir: hvaða dómar túlka tiltekna gerð, og hvaða gerðir breyttu henni eða felldu hana úr gildi.

  • Þær lesa lögskýringargögn laga eða einstakrar greinar: greinargerð frumvarpsins og nefndarálitin.

Dæmi:

  • „Hvað sagði í greinargerð frumvarpsins um 3. gr. skaðabótalaga?“

  • „Hvaða dómar Evrópudómstólsins túlka 82. gr. persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679?“

  • „Hvað sagði EFTA-dómstóllinn um ábyrgð ríkisins á innstæðutryggingum í Icesave-málinu?“

  • „Hefur tilskipun 2001/23/EB um aðilaskipti að fyrirtækjum verið tekin upp í EES-samninginn?“

Ef gervigreindin sér ekki nýju möguleikana, aftengdu Vergo og tengdu aftur í stillingum hennar, t.d. Settings › Connectors í Claude. Þá sækir hún nýjasta lista Vergo yfir það sem hún getur gert.

Framundan

  • ESB/EES-gerðir á íslensku: við höfum óskað eftir aðgangi að EES-gagnagrunni Stjórnarráðsins og að íslensku þýðingunum hjá EFTA. Þá bætast við íslenskir titlar, útdrættir og staða hverrar gerðar á Íslandi, og íslenski textinn eins og hann birtist í EES-viðbætinum.