Claude og ChatGPT með réttarheimildum Vergo

Gervigreindir eins og Claude og ChatGPT eru orðnar ótrúlega öflugar. Þær skrifa, greina og draga saman á við reyndan fagmann. En þegar spurt er um íslenskan rétt hafa þær hingað til þurft að reiða sig á almenna vefleit, og svörin hafa verið eftir því.
Lögfinnur hefur aftur á móti byggt á áreiðanlegustu gögnunum: dómum, lögum, reglugerðum og úrskurðum í gagnasafni Vergo, ásamt dómum Mannréttindadómstóls Evrópu. En hann býður ekki upp á allt sem stóru gervigreindirnar gera.
Nú færðu það besta úr báðum heimum. Tengdu Claude eða ChatGPT við Vergo og nýttu fullkomnustu gervigreindir heims með réttum gögnum.
Rétt gögn: íslenskar réttarheimildir og dómar Mannréttindadómstóls Evrópu úr gagnasafni Vergo, lesnar í heild, með tengli á hverja heimild.
Allt sem gervigreindin býður upp á: láttu hana skrifa greinargerðir, minnisblöð og bréf og búa til Word-skjöl frá grunni. Þú getur líka unnið með hana beint í Word og öðrum forritum.
Tengt við daglegu vinnuna: sama samtalið getur fundið málið, vistað dómana á það og skráð tímana sem fóru í verkið.
Réttarheimildir: rannsóknir með gervigreind
Gervigreindin leitar í dómum Hæstaréttar, Landsréttar og héraðsdóma, í lögum, reglugerðum og úrskurðum, og í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu, með sömu leit og Lögfinnur notar. Hún skipuleggur rannsóknina sjálf og keyrir margar leitir í einu, bæði eftir orðalagi og merkingu.
Les heimildirnar í heild: svarið byggir á því sem stendur í dómnum eða lögunum sjálfum, ekki bara útdrætti.
Rekur lagatilvísanir: hún sér hvaða lagagreinar hver dómur vísar í og getur fundið alla dóma og úrskurði sem vísa í tiltekna grein, t.d. 3. mgr. 26. gr. skaðabótalaga. Einnig sést hversu oft er vísað í hver lög.
Síar eftir dómstól, tegund og tímabili: t.d. aðeins Landsréttur síðustu tvö ár.
Vísar í heimildir með tengli inn í Vergo, svo þú opnar dóminn eða lögin með einum smelli.
Vistar heimildir á mál: biddu hana um að vista dómana sem skipta máli á málið sem þú ert að vinna í.
Dæmi um spurningar
„Hvaða dómar Landsréttar hafa fallið um 26. gr. skaðabótalaga síðustu tvö ár? Taktu saman niðurstöðurnar.“
„Hvernig hafa dómstólar metið tómlæti leigjanda við riftun leigusamnings?“
„Finndu dóma þar sem reynt hefur á 36. gr. samningalaga vegna ósanngjarnra skilmála í lánasamningum, og skrifaðu minnisblað um niðurstöðurnar sem Word-skjal.“
„Hvaða dómar Mannréttindadómstóls Evrópu gegn Íslandi hafa fallið um tjáningarfrelsi, og hvernig hafa íslenskir dómstólar brugðist við þeim?“
„Vistaðu þrjá helstu dómana á mál 2026-123.“
Gervigreind getur gert mistök. Lestu alltaf heimildirnar sem hún vísar í áður en þú byggir á þeim. Tengillinn við hverja heimild opnar hana beint í Vergo.
Ábending: Því nákvæmari sem spurningin er, því betra verður svarið. Nefndu lagagreinina, dómstólinn eða tímabilið ef þú veist það, og biddu gervigreindina að lesa dómana í heild áður en hún svarar.
Fleira sem gervigreindin getur gert
Mál: fundið mál eftir heiti, málsnúmeri eða umbjóðanda, og öll mál umbjóðanda, hvort sem þau eru opin, lokuð eða í biðstöðu. Hún les lýsingu málsins, umbjóðendur, gagnaðila og aðra tengiliði og athugasemdirnar á málinu, og finnur mál sem hafa staðið óhreyfð.
Skjöl málsins: ef stofan geymir skjöl mála í SharePoint finnur gervigreindin möppu málsins. Ef þú samstillir SharePoint við tölvuna með OneDrive og notar gervigreind sem les skrár á tölvunni, t.d. Claude Code eða Codex, getur hún lesið skjöl málsins beint án þess að þú hlaðir þeim upp.
Tímaskráning og kostnaður: skráð tíma, föst gjöld og útlagðan kostnað á mál og farið með þér yfir tillögur Vergo að tímaskráningu. Verð, afsláttur og virðisaukaskattur koma af málinu og verðskránni. Með valkostinum Lesa allar á málum sér hún líka tímaskráningar alls teymisins og samtölur mála, og getur tekið saman það sem á eftir að reikningsfæra.
Verkefni: sýnt verkefni og verkliði, stofnað ný verkefni og breytt fresti, ábyrgðarmanni og stöðu.
Tengiliðir: flett upp umbjóðendum, gagnaðilum og öðrum tengiliðum.
Dæmi:
„Listaðu öll mál fyrir [umbjóðanda], líka lokuð.“
„Taktu saman stöðuna á máli 2026-123 út frá athugasemdunum.“
„Hvað er óreikningsfært á máli 2026-123? Skrifaðu texta á reikninginn.“
„Hvað skráði ég marga tíma í síðustu viku?“
Öruggt og undir þinni stjórn
Þú skráir þig inn með Vergo-aðganginum þínum. Lykilorðið fer aldrei til gervigreindarinnar.
Slökkt er á tengingunum þar til stjórnandi kveikir á þeim og velur hvað þær mega gera.
Þú velur hvað gervigreindin má gera þegar þú tengir, og allar aðgerðir sem breyta gögnum eru merktar sérstaklega.
Gervigreindin sér aðeins það sem hún sækir í Vergo hverju sinni, og aðeins gögn sem þú hefur aðgang að.
Allar tengingar sjást undir Stillingar › Tengingar, þar sem hægt er að aftengja þær hvenær sem er.
Athugaðu persónuverndarstillingarnar í gervigreindinni. Það sem gervigreindin sækir úr Vergo verður hluti af samtalinu og fer til þjónustuaðilans (Anthropic eða OpenAI). Í einstaklingsáskriftum geta samtöl verið notuð til að þjálfa líkönin nema slökkt sé á því.
Claude: Settings › Privacy › slökktu á Help improve Claude.
ChatGPT: Settings › Data controls › slökktu á Improve the model for everyone.
Í fyrirtækjaáskriftum (Claude Team/Enterprise, ChatGPT Business/Enterprise) eru gögn ekki notuð til þjálfunar sjálfgefið. Við mælum með þeim fyrir lögmannsstofur.
Trúnaðarupplýsingar: Farðu eftir reglum stofunnar um hvaða gögn má vinna með í gervigreind. Rannsóknir á réttarheimildum fela ekki í sér gögn umbjóðenda, en mál, tengiliðir, athugasemdir, tímaskráningar og skjöl mála gera það.
Svona byrjar þú
Stjórnandi kveikir á gervigreindartengingum undir Stillingar › Tengingar › Fyrirtækjatengingar.
Í Claude: Vergo er í tengingasafni Claude. Opnaðu Settings › Connectors, leitaðu að Vergo og smelltu á Connect.
Í ChatGPT og öðrum tólum: bættu Vergo við með slóðinni https://api.vergo.is/mcp. Í ChatGPT límir þú líka þessa lýsingu inn í reitinn Description, svo ChatGPT viti hvenær á að nota Vergo:
Vergo is practice management software for Icelandic law firms (Vergo Law) and other professional firms (Vergo Core), with a database of legal sources for Icelandic law (réttarheimildir). Use it first and foremost for legal research: Icelandic judgments (dómar from Hæstiréttur, Landsréttur and héraðsdómar), laws (lög), regulations (reglugerðir) and rulings (úrskurðir), and judgments of the European Court of Human Rights (Mannréttindadómstóll Evrópu, MDE), and how provisions have been applied. Also use it to find projects (mál/verk), tasks (verkefni) and contacts (tengiliðir), log hours, fixed fees and expenses (tímaskráning) and review worklog suggestions, as the signed-in user with their permissions.Lýsingin er á ensku því hún er ætluð ChatGPT en ekki þér. ChatGPT svarar samt á íslensku. Leiðbeiningar skref fyrir skref eru í Vergo undir Stillingar › Tengingar › AI-biðlarar.
Skráðu þig inn í Vergo, veldu hvað gervigreindin má gera og smelltu á Leyfa.
Ef gervigreindin leitar á netinu í stað þess að nota Vergo, nefndu Vergo í spurningunni, t.d. „Leitaðu í réttarheimildum Vergo að …“.
Nánari upplýsingar eru í hjálpargreininni Að tengja AI-biðlara við Vergo og á vergo.is.
Á næstunni
Vergo-appið er í yfirferð hjá OpenAI. Þegar það hefur verið samþykkt verður líka hægt að finna Vergo beint í app-safni ChatGPT.