Skip to main content

Sniðmát sem PDF og beint í rafræna undirritun

Við höfum bætt við þremur nýjungum sem spara skref þegar unnið er með sniðmát og skjöl í málum.

Sniðmát sem PDF

Þegar þú býrð til skjal úr Word sniðmáti getur þú nú valið hvort skjalið verði til sem Word eða PDF. Þetta á bæði við þegar skjali er niðurhalað og þegar það er stofnað í möppu málsins, hvort sem skjölin eru geymd í Vergo eða í SharePoint.

Vista Word skjal sem PDF

Hægrismelltu á Word skjal (.docx) undir Skjöl í málinu og veldu Vista sem PDF. PDF afrit verður til í sömu möppu með sama heiti. Ef PDF skjal með því heiti er þegar til verður nýja skjalið vistað sem ný útgáfa af því.

Sniðmát beint í rafræna undirritun

Í glugganum þar sem sniðmát er valið er nú hnappurinn Senda í undirritun. Vergo fyllir út sniðmátið, breytir því í PDF og opnar nýja undirritunarbeiðni með skjalinu og málinu þegar völdu. Þú bætir við viðtakendum og sendir.

Óundirritaða skjalið vistast hvergi í skjölum málsins, svo það þarf ekki að eyða því eftir á. Þegar allir hafa undirritað vistast undirritaða skjalið sjálfkrafa í möppunni Undirritað í málinu.